Arsenal er sagt tilbúið að selja Myles Lewis-Skelly í sumar og hefur boðið bæði Chelsea og Manchester United möguleikann á að kaupa hinn 19 ára gamla leikmann.
Lewis-Skelly braust upp úr akademíu Arsenal fyrir tveimur árum og náði fljótt að festa sig í sessi í leikmannahópi Mikel Arteta. Hlutverk hans hefur hins vegar minnkað að undanförnu.
Samkeppnin á miðjunni er mikil eftir komu Bruno Guimaraes en fyrir eru meðal annars Declan Rice, Martin Zubimendi, Martin Odegaard og Mikel Merino.
Lewis-Skelly getur einnig leikið sem vinstri bakvörður en þar hefur Arsenal Ricardo Calafiori auk þess sem Piero Hincapie getur leyst stöðuna.
Samkvæmt Ben Jacobs hefur Arteta því komist að þeirri niðurstöðu að best sé fyrir Lewis-Skelly að fara annað í sumar.
Chelsea og Manchester United eru nú sögð hafa fengið tækifæri til að kanna kaup á leikmanninum.