433

Þekkt fyrir að láta pabba sinn naga á sér tærnar - Djarfar myndir hennar vekja athygli

Mynd

Alicia Scholes, dóttir Manchester United-goðsagnarinnar Paul Scholes, hefur vakið athygli á samfélagsmiðlum með myndum úr sumarfríi sínu í Lagos í Portúgal.

Alicia vakti mikla athygli fyrir nokkrum árum þegar hún birti myndir af sér þegar pabbi hennar var að naga á henni táneglurnar.

Alicia, sem er 25 ára, er þar ásamt kærasta sínum Ayomi Odukoya og hefur deilt fjölda mynda og myndskeiða úr ferðinni með rúmlega 100 þúsund fylgjendum sínum á Instagram. Meðal annars hefur hún birt myndir frá ströndinni, sundlauginni og bátsferðum.

Mynd

Alicia hefur sjálf getið sér gott orð í íþróttaheiminum. Hún leikur netbolta með London Pulse og hefur einnig verið hluti af enska landsliðinu. Áður lék hún með Manchester Thunder og landsliðum Englands í yngri aldursflokkum.

Kærasti hennar, Odukoya, tók þátt í bresku raunveruleikaþáttunum Love Island árið 2024. Hann hefur jafnframt spilað knattspyrnu og er virkur á samfélagsmiðlum þar sem hann birtir efni tengt tísku og lífsstíl.

Mynd

Alicia rekur einnig líkamsræktarstöðina Scholes Gym ásamt föður sínum og bróður, Arron.

Hún er dugleg að gefa fylgjendum sínum innsýn í daglegt líf og birti til að mynda nýlega myndir af óskemmtilegum meiðslum á fæti eftir óhapp á hlaupabretti. Nú virðist hún þó hafa jafnað sig og nýtur sumarfrísins í Portúgal til hins ýtrasta.