433

Stutt í að Harry Kane þurfi að rífa upp pennann

Mynd
Getty Images

Harry Kane virðist ætla að binda framtíð sína enn frekar við Bayern München en samkvæmt The Times er enski landsliðsfyrirliðinn nálægt því að skrifa undir nýjan samning sem gildir til sumarsins 2029.

Kane, sem er 33 ára gamall, gekk til liðs við þýska stórliðið frá Tottenham árið 2023 og hefur verið einn af lykilmönnum félagsins síðan. Framherjinn hefur skorað grimmt fyrir Bayern og fest sig í sessi sem einn besti sóknarmaður Evrópu.

Nú virðist félagið vilja tryggja sér þjónustu hans til lengri tíma og viðræður um nýjan samning eru sagðar langt komnar.

Framlenging myndi binda enda á vangaveltur um framtíð Kane, sem hefur reglulega verið orðaður við endurkomu í ensku úrvalsdeildina.

Ef samningurinn verður staðfestur verður Kane samningsbundinn Bayern München til ársins 2029 og heldur áfram að leiða sóknarlínu þýsku meistaranna á næstu árum.