433

Segir frá því þegar Mourinho njósnaði um æfingar - Fengu myndband af andstæðingum æfa

Mynd

Jose Mourinho lét sér ekki nægja að undirbúa Chelsea með hefðbundnum hætti á sínum fyrstu árum hjá félaginu. Samkvæmt John Terry náði Portúgalinn í myndbandsupptökur af lokaðri æfingu Bolton Wanderers fyrir leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni.

Terry greinir frá þessu í nýrri heimildarþáttaröð Netflix, MOURINHO, sem verður frumsýnd á þriðjudag.

„Við áttum að mæta Bolton og allt í einu birtist á skjánum myndband af æfingu þeirra daginn áður. Sam Allardyce var meðal annars að segja leikmönnum sínum að sækja á William Gallas því hann væri ekki sterkur í loftinu. Ég hef enn ekki hugmynd um hvernig Mourinho komst yfir þessar upptökur,“ sagði Terry.

Ekki liggur fyrir hvort um var að ræða leikinn á Stamford Bridge eða útileik Chelsea gegn Bolton tímabilið 2004-05, þegar Lundúnaliðið vann sinn fyrsta Englandsmeistaratitil undir stjórn Mourinhos.

Frásögn Terry kemur skömmu eftir hið svokallaða „Spygate“-mál Southampton, þar sem félagið var rekið úr umspili ensku B-deildarinnar eftir að hafa viðurkennt njósnir um æfingar andstæðinga sinna.

Njósnir í knattspyrnu hafa reglulega ratað í fréttir á síðustu árum, meðal annars þegar Marcelo Bielsa lét fylgjast með æfingum Derby County árið 2019, sem varð til þess að Leeds United var sektað af ensku deildinni.