433

Mættur aftur til starfa eftir sumarfrí en óvissan er gríðarleg

Mynd
Getty Images

Julián Álvarez er mættur aftur til æfinga hjá Atlético Madrid eftir sumarfrí í kjölfar heimsmeistaramótsins, en framtíð argentínska framherjans er enn í mikilli óvissu.

Álvarez gekkst í dag undir læknisskoðun og þrekpróf ásamt Alex Baena, Marcos Llorente og Juan Musso, sem allir fengu lengra frí eftir að hafa tekið þátt í úrslitaleik HM 19. júlí. Leikmennirnir munu síðan hefja æfingar með liðinu í Majadahonda.

Samkvæmt erlendum miðlum vill Álvarez helst ganga til liðs við Barcelona, en Atlético hefur ítrekað gert ljóst að félagið hafi engan áhuga á að selja sóknarmanninn til erkifjendanna í La Liga.

Ef Álvarez þrýstir á um brottför myndi Atlético frekar selja hann til félags utan Spánar. Arsenal og Paris Saint-Germain hafa bæði verið sterklega orðuð við heimsmeistarann og fylgjast grannt með stöðunni.

Á næstu dögum er búist við fundum milli leikmannsins og forsvarsmanna Atlético, þar sem framtíð hans verður rædd. Álvarez er því áfram eitt heitasta nafnið á félagaskiptamarkaðnum á lokaspretti sumargluggans.