Ronald Araujo er genginn til liðs við Liverpool á láni frá Barcelona. Liverpool fær kauprétt á varnarmanninum næsta sumar fyrir tæplega 50 milljónir punda.
Liverpool mun greiða laun Araujo á lánstímanum en Úrúgvæinn samþykkti launalækkun til þess að komast til Englands.
Araujo er 27 ára og getur bæði leikið sem miðvörður og hægri bakvörður. Hann missti af heimsmeistaramótinu með Úrúgvæ vegna meiðsla en er nú klár í slaginn og byrjar að æfa með Liverpool í vikunni.
Varnarlína Liverpool er að styrkjast en Jeremy Jacquet byrjar einnig að æfa með liðinu í vikunni og Giovanni Leoni er að ljúka endurhæfingu. Joe Gomez missir hins vegar af fyrsta leik tímabilsins gegn Newcastle.
„Ég er spenntur að vera hér hjá þessu risastóra félagi með mikla sögu. Þetta var tilvalið skref fyrir mig á þessu stigi ferilsins,“ sagði Araujo.