Liverpool gæti verið tilbúið að leyfa Cody Gakpo að yfirgefa félagið síðar í félagaskiptaglugganum ef Rauðliðar ná að landa einum af sínum helstu sóknarmarkmiðum.
Samkvæmt enskum miðlum fylgist Tottenham grannt með stöðu hollenska landsliðsmannsins, sem er 27 ára gamall, og gæti reynt að fá hann til liðs við sig ef Liverpool bætir við öðrum sóknarmanni.
Liverpool hefur undanfarna daga verið orðað við leikmenn á borð við Bradley Barcola hjá Paris Saint-Germain og fleiri kantmenn, sem gæti skapað pláss fyrir brottför Gakpo.
Tottenham er sagt vilja styrkja sóknarlínuna fyrir komandi tímabil og lítur á Gakpo sem leikmann sem gæti bætt bæði gæði og reynslu við hópinn.
Enn sem komið er hafa þó engar formlegar viðræður átt sér stað milli félaganna og framtíð Gakpo ræðst að stórum hluta af því hvort Liverpool tekst að fá nýjan sóknarmann áður en glugginn lokar.