433

Guardiola var nálægt því að taka við í sumar - Þreyta eftir langa dvöl í City hafði áhrif

Mynd

Pep Guardiola var afar nálægt því að taka við sem landsliðsþjálfari Ítalíu áður en hann hætti skyndilega við, að sögn Paolo Maldini, fyrrverandi tæknistjóra ítalska knattspyrnusambandsins.

Guardiola lét af störfum hjá Manchester City fyrr í sumar eftir tíu ár við stjórnvölinn og var sterklega orðaður við ítalska landsliðið. Nú hefur Maldini upplýst hversu langt viðræðurnar voru komnar.

„Við hittum hann í Barcelona, fengum okkur hádegisverð og ræddum saman allan daginn. Hann var mjög spenntur fyrir verkefninu og var afar nálægt því að samþykkja starfið,“ sagði Maldini í viðtali við Corriere della Sera.

Samkvæmt Maldini hafði Guardiola þegar hafið undirbúning fyrir starfið.

„Hann var meira að segja byrjaður að skrifa niður byrjunarlið og mögulegar leikskipanir á blöð,“ sagði ítalska varnargoðsögnin en hann sagði Guardiola of þreyttan eftir langa dvöl hjá Manchester City,

Að lokum varð þó ekkert af ráðningunni og Ítalía þurfti að leita annarra leiða. Skömmu síðar sagði Maldini sjálfur starfi sínu lausu, en einnig rann út í sandinn tilraun sambandsins til að ráða Andrea Pirlo vegna tengsla hans við rússneskt veðmálafyrirtæki.

Maldini sagði að Guardiola væri sá þjálfari sem best sameinaði sóknarsinnaðan og tæknilegan fótbolta og að hann hefði lengi haft áhuga á að stýra landsliði. Samningur náðist hins vegar aldrei og draumurinn varð ekki að veruleika.