433

Glæsileg fasteign hans til sölu á 670 milljónir - Sjálfur metinn á tæpa 17 milljarða

Mynd

Fyrrum heimili Sandro Tonali í Newcastle hefur verið sett á sölu fyrir fjórar milljónir punda.

Tonalli var seldur til Tottenham á dögunum fyrir 100 milljónir punda eða 16,7 milljarða.

Mynd

Húsið sem hann bjó í er til sölu á 670 milljónir.

Um er að ræða glæsilega sex svefnherbergja villu í Jesmond-hverfinu þar sem Tonali bjó ásamt eiginkonu sinni Juliette á meðan hann lék með Newcastle.

Húsið er heldur betur búið öllum helstu þægindum. Þar má meðal annars finna innisundlaug, gufubað, líkamsræktaraðstöðu, leikjaherbergi og kokteilbar. Þá er einnig átta manna heitur pottur í húsinu.

Mynd

Villan er frá Edwardstímabilinu en hefur verið endurnýjuð mikið og sameinar því klassískan stíl við nútímalegan lúxus. Stórir gluggar og glerhurðir opna út í rúmgóðan garð með stórum trjám og svokölluðum „leynigarði“.

Mynd

Öll sex svefnherbergin eru með sérbaðherbergi og aðalsvefnherbergið er einnig með fataherbergi og útsýni yfir garðinn.

Tonali gekk til liðs við Newcastle frá AC Milan árið 2023 fyrir um 55 milljónir punda og varð síðar lykilmaður í liði félagsins.

Samkvæmt enskum fjölmiðlum hafa fleiri leikmenn Newcastle einnig búið í glæsihýsinu í gegnum tíðina.

Mynd