433

Gabbaði Harry Maguire upp úr skónum - Mætti með svartan ruslapoka í landsliðið

Mynd
Getty Images

Jamie Vardy hefur loksins upplýst sannleikann á bak við myndbandið sem fór eins og eldur í sinu þegar Harry Maguire mætti í sitt fyrsta verkefni með enska landsliðinu árið 2017, með eigur sínar í svörtum ruslapokum.

Maguire hafði nýverið gengið til liðs við Leicester City og leitaði ráða hjá Vardy um hvað hann ætti að taka með sér í landsliðsverkefnið. Vardy sá hins vegar tækifæri til að stríða liðsfélaga sínum.

„Hann spurði mig hvað hann þyrfti að hafa með sér og ég sagði honum bara að setja allt í svarta ruslapoka. Hann gerði það svo í alvöru,“ sagði Vardy í hlaðvarpinu Jamie Vardy's Having A Party.

Þegar Maguire mætti á St. George's Park með tvo stóra ruslapoka vakti það mikla athygli og myndband af komu hans fór fljótt í dreifingu á samfélagsmiðlum.

Maguire viðurkenndi síðar að hann hefði aldrei verið viss um hvort Vardy væri að plata sig. Hann sagði meira að segja móður sína hafa sent sér skilaboð og spurt: „Hvað er eiginlega með þessa poka?“

Varnarmaðurinn tók grínið þó með bros á vör og sagði þetta hafa verið saklaust uppátæki hjá Vardy sem enn í dag vekur hlátur meðal stuðningsmanna enska landsliðsins.