433

Fyrsta tilboði West Ham í hetjuna hans Heimis hafnað

Mynd
Getty Images

West Ham United hefur fengið fyrsta tilboð sitt í írska landsliðsframherjann Troy Parrott hafnað af AZ Alkmaar, samkvæmt upplýsingum frá Sky Sports.

Parrott var hetja írska landsliðsins síðasta haust þegar liðið komst í umspil fyrir HM undir stjórn Heimis Hallgrímssonar.

Tilboðið var sagt talsvert undir því verði sem hollenska félagið metur leikmanninn á. AZ vill fá um 17 milljónir punda fyrir hinn 24 ára gamla framherja, sem á þrjú ár eftir af samningi sínum.

West Ham er nú sagt íhuga að leggja fram hærra tilboð í von um að ná samkomulagi við hollenska félagið áður en félagaskiptaglugganum lýkur.

Parrott hefur vakið athygli með góðri frammistöðu hjá AZ og fest sig í sessi sem landsliðsmaður Írlands. West Ham lítur á hann sem mikilvægan kost til að styrkja sóknarlínuna fyrir komandi tímabil og ólíklegt er að félagið gefist upp eftir fyrstu höfnunina.