433

Fær ekki að fara frá Real Madrid - Mourinho hefur tekið ákvörðun

Mynd

Real Madrid hefur ákveðið að halda brasilíska sóknarmanninum Endrick hjá félaginu og hefur tilkynnt leikmanninum og umboðsmönnum hans um ákvörðunina.

Aston Villa, Manchester United og fleiri lið höfðu verið orððuð við hann.

Fabrizio Romano greinir frá þessu en spænska blaðið AS hafði áður sagt frá málinu. Forráðamenn Real Madrid hafa einnig komið skilaboðunum áleiðis til Roc Nation, umboðsskrifstofu Endrick.

Framtíð Brasilíumannsins hefur verið til umræðu en nú virðist ljóst að hann verður áfram hluti af leikmannahópi Real Madrid og fær tækifæri til að berjast fyrir sæti sínu hjá spænska stórveldinu.

José Mourinho hefur einnig samþykkt þá áætlun að halda Endrick innan hópsins og halda áfram að vinna með honum á komandi tímabili.

Endrick hefur lengi verið talinn einn efnilegasti sóknarmaður Brasilíu og Real Madrid virðist því ekki tilbúið að láta hann fara á þessu stigi.

Ákvörðunin hefur nú verið kynnt öllum aðilum og stefnan er skýr, Endrick verður áfram hjá Real Madrid.