Alan Brazil sneri aftur í morgunþátt talkSPORT í vikunni eftir tæplega fjögurra mánaða fjarveru og greindi frá því að hann hefði verið aðeins örfáum vikum frá dauða áður en hann gekkst undir lífsnauðsynlega lifrarígræðslu.
Hinn 67 ára gamli útvarpsmaður sagði að læknar hefðu fundið „fullkomna samsvörun“ fyrir nýja lifur á hárréttum tíma.
„Þeir sögðu mér að ef þetta hefði dregist um tvær vikur í viðbót væri ég farinn,“ sagði Brazil í fyrsta þætti sínum eftir endurkomuna.
Hann greindi jafnframt frá því að hann hefði greinst með krabbamein í lifrinni. Læknar hefðu þó beðið með aðgerð þar til hentugt líffæri fyndist, þar sem hætta væri á að krabbameinið dreifðist ef gripið yrði inn í of snemma.
Aðgerðin tók sjö til átta klukkustundir og ekki gekk allt áfallalaust fyrir sig. Hjarta Brazil stöðvaðist í um 40 sekúndur meðan á aðgerðinni stóð, en fór af sjálfu sér aftur af stað áður en grípa þurfti til endurlífgunar.
„Konan mín var í tárum. Ég hélt í alvöru að þetta væri kveðjustund,“ sagði hann.
Brazil er enn í bataferli, tekur stóran skammt af lyfjum á hverjum degi og hefur verið ráðlagt að forðast sól þar sem ónæmiskerfið er enn veikt.
Þrátt fyrir það segist hann þakklátur fyrir að vera kominn aftur.
„Ég er ekki orðinn hundrað prósent, en allt héðan í frá er bónus. Ég var einfaldlega dauðans matur,“ sagði Brazil.