433

United viðurkennir að hafa gripið til of harkalega aðgerða gegn stuðningsmönnum

Mynd
Getty Images

Manchester United hefur viðurkennt að aðgerðir félagsins gegn ólöglegri miðasölu hafi valdið mörgum stuðningsmönnum óþægindum og að sumir hafi upplifað að þeim væri sýnd of mikil harka.

Félagið sendi í síðasta mánuði þúsundum stuðningsmanna tilkynningar um að aðgangar þeirra hefðu verið tímabundið stöðvaðir vegna gruns um óeðlilega notkun. Í sumum tilfellum var jafnvel hótað að afturkalla ársmiða ef viðkomandi gæti ekki útskýrt notkunina.

Manchester United segir nú að félagið hafi vanmetið hversu algengt væri að fjölskyldur og vinir deildu aðgangsupplýsingum sín á milli. Því hafi margir saklausir stuðningsmenn lent í rannsókn.

Stuðningsmannasamtök á borð við The ’58, Manchester United Supporters’ Trust og The Red Army gagnrýndu aðgerðirnar harðlega og sögðu félagið láta stuðningsmenn líða eins og grunaða afbrotamenn.

United segir þó að aðgerðirnar hafi einnig leitt í ljós umfangsmikla skipulagða miðasölu, meðal annars eitt tilvik þar sem 1.088 aðgangar voru notaðir úr sama tækinu.