433

Sjáðu myndbandið - Neymar trylltur eftir leik og lét menn heyra það

Mynd

Neymar missti stjórn á skapi sínu eftir að Santos tryggði sér sæti í átta liða úrslitum brasilíska bikarsins með 1:0 sigri á Remo á þriðjudagskvöld.

Rony skoraði eina mark leiksins á 74. mínútu og tryggði Santos áframhald í keppninni. Eftir leikinn hitnaði hins vegar verulega í kolunum.

Myndskeið sem birtust á samfélagsmiðlum sýna Neymar öskra á forsvarsmenn Remo í leikmannagöngunum á leið sinni til búningsklefans. Brasilíumaðurinn lét ókvæða rigna yfir þá og hrópaði ítrekað orðið „úr leik“ á meðan hann gerði ögrandi handahreyfingar í átt að heimamönnum.

Önnur myndskeið sýna einnig fulltrúa Remo svara fyrir sig með reiðilegum tilsvörum og látbragði, en öryggisgæsla hélt aðilunum aðskildum.

Ekki hefur verið upplýst hvað varð til þess að upp úr sauð á milli Neymar og forsvarsmanna Remo.

Neymar, sem sneri aftur til Santos fyrr á árinu, hefur verið í lykilhlutverki hjá uppeldisfélagi sínu og hjálpaði liðinu nú að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum bikarkeppninnar.