433

Ronaldo sýndi fólki í dótakassann sinn - Metinn á marga milljarða

Mynd

Cristiano Ronaldo gaf stuðningsmönnum sínum innsýn í eitt glæsilegasta bílasafn íþróttaheimsins þegar hann birti myndir af hluta safns síns á Instagram.

Portúgalinn birti myndaröð með einföldu orðunum „My toys“ og sýndi þar nokkra af dýrustu ofurbílum sem hann á. Þar á meðal eru Ferrari Purosangue, Ferrari 599 GTO, Ferrari Daytona SP3 og hinn afar sjaldgæfi Ferrari Monza SP1, en samanlagt eru bílarnir metnir á margar milljónir punda.

Mynd

Einnig má sjá tvo Bugatti-bíla í eigu Ronaldo, Veyron og hinn afar sjaldgæfa Centodieci, en aðeins tíu eintök voru framleidd. Centodieci hefur verið metinn á allt að 12,5 milljónir punda og er einn verðmætasti bíll heims.

Safnið inniheldur einnig McLaren Speedtail og Mercedes-AMG One, auk fjölda annarra lúxusbíla á borð við Rolls-Royce, Bentley, Lamborghini og Aston Martin.

Ronaldo viðurkenndi í viðtali á síðasta ári að hann hefði nánast misst tölu á bílunum sínum.

„Ef ég ætti að giska myndi ég segja 40 eða 41. Ég veit það eiginlega ekki. Ég elska sérstaklega Bugatti-bílana, þeir eru einstakir,“ sagði fimmfaldi Gullboltahafinn.

Mynd

Ronaldo, sem varð fyrsti knattspyrnumaðurinn til að verða milljarðamæringur, er nú í sumarfríi áður en hann snýr aftur til Al-Nassr. Samkvæmt erlendum miðlum undirbýr hann jafnframt brúðkaup sitt með Georginu Rodríguez á næstu vikum.