Brooklyn Beckham vakti mikla athygli á samfélagsmiðlum þegar hann fagnaði fimm ára brúðkaupsafmæli sínu með eiginkonu sinni, Nicolu Peltz, með tilfinningaríkri ástarjátningu.
Elsti sonur David og Victoriu Beckham birti myndir frá fríi þeirra í Frakklandi og hrósaði eiginkonu sinni í hástert.
„Til hamingju með brúðkaupsafmælið, Nicola. Ég get ekki lýst því hversu mikið ég elska þig. Þú ert besti vinur minn og ég elska þig meira en lífið sjálft,“ skrifaði Brooklyn.
Það voru þó lokaorð færslunnar sem vöktu mesta athygli.
„Ég lofa að vernda þig alltaf,“ skrifaði hann, en margir túlkuðu þau sem óbeina vísun í orðróminn um spennu innan Beckham-fjölskyldunnar.
Nicola deildi sömu myndum á sinni Instagram-síðu og þakkaði Brooklyn fyrir að vera „besti eiginmaður sem hún gæti óskað sér“.
Færslurnar birtust skömmu eftir að erlendir miðlar greindu frá því að Brooklyn og Nicola hefðu forðast að hitta David og Victoríu Beckham, þrátt fyrir að bæði pörin hefðu verið í fríi í Suður-Frakklandi á svipuðum tíma.
Samkvæmt fréttum sleppti Brooklyn árlegri snekkjuferð Beckham-fjölskyldunnar annað árið í röð og eyddi þess í stað fríinu um borð í snekkju Eltons John, sem er guðfaðir hans.
Hvorki Brooklyn né foreldrar hans hafa tjáð sig opinberlega um sögusagnirnar, en ummæli hans um að „vernda“ eiginkonu sína hafa kveikt nýjar vangaveltur um að spennan innan fjölskyldunnar sé enn til staðar.