433

Nottingham horfir til þess að kaupa miðjumann City

Mynd

Nottingham Forest hefur sett sjónir sínar á Tijjani Reijnders, miðjumann Manchester City, og er talið tilbúið að greiða allt að 55 milljónir punda fyrir Hollendinginn.

Samkvæmt enskum miðlum er Reijnders opinn fyrir félagaskiptunum þar sem hann vill tryggja sér stærra hlutverk og reglulegan spiltíma. Hann yrði lykilmaður í liði Oliver Glasner ef af kaupunum verður.

Reijnders kom til Manchester City frá AC Milan síðasta sumar fyrir 46,5 milljónir punda. Hann lék alls 47 leiki á tímabilinu en var ekki alltaf í byrjunarliðinu.

Atlético Madrid sýndi leikmanninum einnig áhuga fyrr í sumar en hætti við þegar City setti um 60 milljóna punda verðmiða á hann.

Manchester City er að endurnýja miðjuna og vinnur meðal annars að kaupum á Ayyoub Bouaddi frá Lille. Þá er félagið einnig að búa sig undir möguleg tilboð í Rodri frá Real Madrid og Barcelona.

Nottingham Forest heldur jafnframt áfram viðræðum um Ousmane Diomande frá Sporting og fylgist enn með stöðu Liam Delap hjá Chelsea.