433

Konan sem talar opinskátt um kynlíf sitt vekur athygli - Fertug í svakalegu formi

Mynd

Melissa Satta, fyrrverandi eiginkona knattspyrnumannsins Kevin-Prince Boateng, hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum eftir að hafa birt nýjar myndir af sér í bikiní úr sumarfríi sínu á Sardiníu.

Satta, sem er fertug og starfar sem sjónvarpskona og fyrirsæta á Ítalíu, deildi myndunum með rúmlega 4,7 milljónum fylgjenda sinna á Instagram. Fjölmargir hrósuðu útliti hennar í athugasemdum við færsluna.

Mynd

Satta og Boateng kynntust árið 2011 eftir að hann gekk til liðs við AC Milan og gengu í hjónaband árið 2016. Þau skildu hins vegar fjórum árum síðar.

Samband þeirra vakti töluverða athygli á sínum tíma þegar Satta sagði í viðtali að virkt kynlíf þeirra hefði haft áhrif á meiðslavandræði Boatengs.

„Við stundum kynlíf sjö til tíu sinnum í viku og þess vegna er hann alltaf meiddur,“ sagði hún í umdeildu viðtali sem vakti miklar umræður í ítölskum fjölmiðlum.

Mynd

Síðar dró hún úr ummælum sínum og sagði þau hafa verið sögð í léttum tón, en þau fylgdu henni lengi eftir. Samband hennar við tennisstjörnuna Matteo Berrettini vakti einnig athygli og sambærilegar vangaveltur komu upp í ítölskum fjölmiðlum.

Satta heldur áfram að vera áberandi í fjölmiðlum og samfélagsmiðlum, bæði fyrir störf sín og einkalíf.