433

Fullyrt að Chelsea sé tilbúið að selja Enzo Fernandez

Mynd
Getty Images

Chelsea myndi íhuga að selja Enzo Fernández ef rétt tilboð bærist, að sögn Kaveh Solhekol, aðalfréttamanns Sky Sports.

Solhekol segir argentínska landsliðsmanninn ekki vera meðal þeirra leikmanna sem séu „ósnertanlegir“ hjá félaginu.

„Chelsea myndi selja Enzo Fernández. Hann er ekki ósnertanlegur,“ sagði Solhekol.

Samkvæmt honum eru leikmenn á borð við Reece James, Cole Palmer, João Pedro, Estevão og Levi Colwill mun líklegri til að vera haldið hvað sem tautar og raular.

Fram kemur að Fernández hafi viljað nýjan samning og jafnframt verið orðaður við Real Madrid, sem hafi skapað ákveðna óvissu um framtíð hans.

Chelsea metur miðjumanninn á um 120 milljónir punda, en Solhekol telur að félagið myndi líklega samþykkja tilboð upp á um 100 milljónir punda.

Fernández kom til Chelsea frá Benfica í janúar 2023 fyrir félagsmet og hefur verið lykilmaður á miðju liðsins síðan.