Anthony Taylor hefur tekið við nýju starfi sem yfirmaður dómaramála hjá tyrkneska knattspyrnusambandinu eftir að hafa lagt flautuna á hilluna.
Hinn 47 ára gamli Englendingur tilkynnti í síðasta mánuði að hann væri hættur dómgæslu eftir 20 ára feril. Á þeim tíma dæmdi hann 668 atvinnuleiki, auk þess að stýra leikjum á Evrópumótinu 2020 og heimsmeistaramótunum 2022 og 2026.
Taylor var kynntur til leiks á sérstökum blaðamannafundi þar sem honum var afhent treyja tyrkneska knattspyrnusambandsins, í kynningu sem minnti helst á komu stórstjörnu til knattspyrnufélags.
Í nýju starfi sínu mun Taylor bera ábyrgð á þróun úrvalsdómara í Tyrklandi og vinna að því að efla dómgæslu landsins samkvæmt stöðlum UEFA og FIFA.
Tyrknesk dómgæsla hefur verið mikið í umræðunni undanfarin misseri, meðal annars eftir veðmálahneyksli sem kom upp síðasta haust og varð til þess að tyrkneska knattspyrnusambandið hóf umfangsmikla rannsókn.