Chelsea hefur engan áhuga á að fá portúgalska landsliðsmarkvörðinn Diogo Costa til félagsins, þrátt fyrir þrálátar sögusagnir síðustu vikna.
Samkvæmt Sky Sports News er ekkert til í fréttum um að Chelsea hyggist virkja 60 milljóna evra klásúlu markvarðarins hjá Porto. Félagið hefur hvorki haft samband við Porto né lagt fram tilboð.
Forráðamenn Chelsea eru sagðir afar ánægðir með þá markverði sem fyrir eru í leikmannahópnum. Robert Sánchez verður áfram aðalmarkvörður liðsins og miklar væntingar eru einnig bundnar við hinn unga Mike Penders.
Filip Jörgensen er hins vegar á leið til Strasbourg á láni, en það breytir ekki afstöðu Chelsea varðandi Costa.
Þar með virðist ljóst að Portúgalinn verði ekki síðustu stóru kaup Chelsea í sumar, þrátt fyrir að hafa ítrekað verið orðaður við félagið.