Jason McAteer, fyrrum leikmaður Liverpool, telur að fyrsta tímabil Alexanders Isak á Anfield hafi verið mikið vonbrigði og að meiðsli hans ásamt velgengni Hugo Ekitike hafi haft neikvæð áhrif á sjálfstraust sænska framherjans.
Isak kom til Liverpool frá Newcastle fyrir metfé, um 130 milljónir punda, en tímabilið fór illa af stað. Hann glímdi við erfið félagaskipti og varð síðan fyrir alvarlegum fótbrotum í desember sem héldu honum lengi frá keppni.
„Hann þrífst á sjálfstrausti. Ferill hans hjá Liverpool hefur verið stopull frá upphafi,“ sagði McAteer.
Hann telur að Ekitike hafi fljótt orðið í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum á meðan Isak var frá vegna meiðsla.
„Ekitike varð fljótt uppáhaldsleikmaður stuðningsmanna og það hafði áhrif á egóið hjá Isak,“ sagði McAteer.
Ekitike verður þó sjálfur lengi frá vegna slitinnar achillessinar sem hann varð fyrir í apríl og er ekki búist við að hann snúi aftur fyrr en um áramót.
McAteer telur að nýr knattspyrnustjóri Liverpool geti hjálpað Isak að hefja feril sinn upp á nýtt.
„Hann þarf gott undirbúningstímabil. Nýr stjóri og nýr leikstíll gefa honum tækifæri til að ýta á endurræsingarhnappinn og byrja upp á nýtt,“ sagði McAteer.