Fyrrverandi brasilíski landsliðsmaðurinn Hulk vakti heimsathygli fyrir utan fótboltavöllinn þegar hann hóf samband við frænku fyrrverandi eiginkonu sinnar og giftist henni síðar.
Hulk, sem er þekktastur fyrir tíma sinn hjá Porto, Zenit Sankti Pétursborg og síðar Atlético Mineiro, sleit 12 ára hjónabandi sínu við Iran Angelo árið 2019. Þau eiga saman þrjú börn.
Á innan við ári eftir skilnaðinn bárust fréttir af því að Hulk væri kominn í samband með Camilu Angelo, sem er frænka fyrrverandi eiginkonu hans. Parið giftist skömmu síðar og eiga þau nú saman börn.
Málið vakti gríðarlega athygli í Brasilíu og gagnrýndi Iran Angelo sambandið harðlega. Hún lýsti því sem „grimmum svikum“ og sagði sársaukann hafa verið mikinn.
„Þetta sýnir hversu langt svik geta gengið þegar þau koma frá fólkinu sem maður treystir mest,“ skrifaði hún meðal annars á samfélagsmiðlum.
Í viðtali sagðist hún hafa litið á Camilu sem dóttur sína.
„Ég gaf henni allt frá því hún fæddist. Ég skildi aldrei hvers vegna þetta gerðist,“ sagði Iran.
Camila svaraði síðar gagnrýninni með opnu bréfi þar sem hún sagðist elska frænku sína enn og að fólk utan fjölskyldunnar þekkti ekki alla söguna.
Hulk, sem varð fertugur á þessu ári, hefur aldrei tjáð sig ítarlega um umdeilda fjölskyldudramaið en hefur haldið áfram lífi sínu með Camilu, sem hann kvæntist árið 2020.