433

Rúrik hitti Beckham og segir frá hvað fór fram þeirra á milli - „ Mig langar svo að leiðrétta þetta“

Mynd

„Ég myndi vera í golfbíl í honum. Mig langar að leiðrétta misskilning við hann," segir Rúrik Gíslason fyrrum landsliðsmaður í fótbolta í hlaðvarpinu Seinni Níu þar sem fjallað er um golf.

Rúrik fór vítt og breitt yfir sviðið en Rúrik valdi draumahollið sitt og þar var fyrstur á blað, David Beckham.

Rúrik hefur einu sinni rekist á Beckham og sá hittingur fór ekki alveg eins og hann sá það fyrir sér.

„Fyrir tveimur árum var ég í Los Angeles á hóteli, hann var að borða á borðinu við hliðin á mér. Ég var búin að fá mér nokkur rauðvínsglös, ég lít svo mikið upp til hans," sagði Rúrik um atvikið þegar hann hitti Beckham.

„Hann var hliðina á mér, ég fæ kjarkinn loksins. Á HM 2018 kom einverstaðar fram, ég er að segja þessa sögu því ég elska að gera grín af mér. Þar kom fram "The New David Beckham". Ég var helvíti ánægður með þessa fyrirsögn og mynd af mér.“

Eftir að hafa rifjað upp þetta atvik frá HM þar sem Rúrik varð heimsfrægur á einni nóttu fór hann yfir í það þegar hann gaf sig á tal við Beckham.

„Ég sit þarna og drekk í mig kjark, ég byrja að ljúga að því að ég og Björgólfur Thor séum frábærir vinir. Ég hef aldrei talað við hann og Björgólfur veit eflaust ekkert hver ég er, ég var svo starstruck og vissi ekkert hvað ég átti að segja. Þannig að ég hendi í það að hérna um árið hafi verið talað um það að karlinn væri "The New David Beckham".

„Ég brotnaði saman inni í mér, ég hugsaði hvað var ég að segja og gera. Mig langar svo að leiðrétta þetta, ég hef sofið illa í tvö ár. Þetta er hræðilegt. 

„Honum fannst ég bara skrýtið held ég, þetta var mjög skrýtið augnablik," sagði Rúrik sem myndi vilja fá að leiðrétta þetta mál við Beckham í golfi.