433

Ornstein staðfestir að Bruno sé á leið til Arsenal - Allt að verða klárt

Mynd
Getty Images

Arsenal er við það að ganga frá kaupum á brasilíska landsliðsmanninum Bruno Guimarães frá Newcastle United.

Þetta segir félagaskiptafréttamaðurinn David Ornstein hjá The Athletic, sem greinir frá því að félögin séu að nálgast endanlegt samkomulag. Vilji allra aðila sé að ljúka félagaskiptunum sem fyrst.

Samkvæmt Ornstein er samningurinn á góðri leið með að klárast og bíður Guimarães nú aðeins eftir leyfi frá Newcastle til að gangast undir læknisskoðun og ganga formlega til liðs við Arsenal.

Hinn 28 ára gamli miðjumaður hefur verið einn lykilleikmanna Newcastle undanfarin ár og fyrirliði liðsins. Arsenal hefur lengi haft mikinn áhuga á Brasilíumanninum og virðist nú loksins vera að landa einum stærsta leikmanni sumarsins.

Ef ekkert óvænt kemur upp verður Guimarães næsti leikmaður til að styrkja lið Mikel Arteta fyrir komandi tímabil.