433

Lukaku fær tilboð frá Bandaríkjunum

Mynd
Getty Images

Romelu Lukaku gæti verið á leið í bandarísku MLS-deildina en samkvæmt Sky Italia hefur Atlanta United sýnt belgíska framherjanum áhuga.

Lukaku, sem er 33 ára gamall, á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Napoli og framtíð hans hjá ítalska félaginu er sögð óljós.

Belginn missti af stórum hluta síðasta tímabils vegna meiðsla og hefur í kjölfarið fallið niður í goggunarröðinni hjá Napoli.

Umboðsmaður Lukaku sagði fyrr í sumar að leikmaðurinn ætti erfitt með að sætta sig við varamannshlutverk, sem hefur ýtt undir vangaveltur um að hann gæti leitað á ný mið áður en félagaskiptaglugganum lýkur.

Atlanta United fylgist nú grannt með stöðunni og gæti reynt að sannfæra hinn reynda framherja um að flytja sig yfir í MLS.

Napoli þarf því á næstu vikum að taka ákvörðun um hvort félagið vilji halda Lukaku út samningstímann eða selja hann á meðan enn fæst greiðsla fyrir belgíska landsliðsmanninn.