433

Kemur ekki til greina hjá Liverpool að selja sóknarmanninn

Mynd
Getty Images

Liverpool hefur engan áhuga á að selja Cody Gakpo þrátt fyrir að Tottenham hafi sýnt hollenska landsliðsmanninum áhuga.

Samkvæmt enskum miðlum hafa Spurs látið Liverpool vita af áhuga sínum, en forráðamenn Englandsmeistaranna vilja frekar styrkja sóknarlínu sína en missa lykilleikmenn.

Gakpo er samningsbundinn Liverpool til ársins 2030 og talið er að aðeins gríðarhátt tilboð gæti breytt afstöðu félagsins. Hinn 27 ára gamli kantmaður skoraði níu mörk á síðasta tímabili, sem þótti undir væntingum, en Liverpool metur hann enn mikils. Á tímabilinu 2024-25 skoraði hann 18 mörk.

Liverpool vinnur jafnframt að mögulegum kaupum á Bradley Barcola frá Paris Saint-Germain, sem er metinn á um 145 milljónir punda. Félagið hefur þegar misst Mohamed Salah í sumar og eini sóknarmaðurinn sem hefur bæst í hópinn er Víctor Muñoz, sem kom frá Osasuna.

Tottenham hefur verið afar umsvifamikið á félagaskiptamarkaðnum í sumar. Félagið hefur meðal annars fengið Sandro Tonali, Mateus Fernandes, Jan Paul van Hecke, Andy Robertson og Marcos Senesi í sínar raðir og fylgist einnig með Omar Marmoush hjá Manchester City auk þess að eiga í viðræðum um Savinho.

Ef Tottenham myndi bæta Gakpo við hópinn gæti sumareyðsla félagsins farið yfir 300 milljónir punda.