433

Fær leyfi til að fara frá Arsenal - Í læknisskoðun hjá Everton í dag

Mynd

Christian Nørgaard er á leið til Everton eftir að Arsenal veitti danska miðjumanninum leyfi til að gangast undir læknisskoðun hjá félaginu.

Everton hefur náð samkomulagi við Arsenal um kaupverð sem nemur um sjö milljónum punda og er búist við að félagaskiptin verði staðfest á næstu dögum.

Hinn 32 ára gamli Nørgaard var með Arsenal í æfingaferð á Spáni í síðustu viku en kom ekki við sögu í 4:1-sigri liðsins gegn Girona. Hann ferðaðist heldur ekki með hópnum til Dublin þar sem Arsenal mætir Real Betis í æfingaleik.

Nørgaard gekk til liðs við Arsenal frá Brentford fyrir ári síðan fyrir um tíu milljónir punda. Hann átti hins vegar erfitt uppdráttar og lék aðeins 101 mínútu í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.

Þrátt fyrir takmarkaðan spiltíma var Nørgaard sagður mikilvæg rödd í búningsklefanum þegar Arsenal varð Englandsmeistari.

Mikel Arteta vill styrkja miðjuna enn frekar í sumar og er Bruno Guimarães, fyrirliði Newcastle, áfram sterklega orðaður við félagið.