Vinícius Júnior mun hefja á ný samningaviðræður við Real Madrid á næstu dögum, en Arsenal fylgist grannt með stöðunni.
Samkvæmt Sky Sports er brasilíski landsliðsmaðurinn efsti kostur Arsenal til að styrkja vinstri kantinn ef samningar hans við spænska stórliðið ganga ekki upp.
Viðræður Real Madrid og fulltrúa Viníciusar hafa staðið yfir í um 18 mánuði. Ágreiningur um launakjör hefur tafið málið, en leikmaðurinn vill verða einn tekjuhæsti leikmaður félagsins. Real Madrid vill hins vegar halda í launastefnu sína, þar sem Kylian Mbappé er nú hæst launaði leikmaðurinn.
Þrátt fyrir það hefur Vinícius ítrekað lýst því yfir að hann vilji vera áfram á Santiago Bernabéu og kallað Real „draumafélagið sitt“.
Takist félögunum ekki að ná samkomulagi gæti Arsenal reynt að nýta sér stöðuna. Lundúnafélagið er tilbúið að bregðast hratt við, en framtíð Brasilíumannsins er enn alfarið í hans eigin höndum.