433

Segir upp mánuði fyrir mót hjá United - Ósáttur með fjárfestingu

Mynd
Getty Images

Manchester United er án knattspyrnustjóra hjá kvennaliðinu aðeins mánuði fyrir upphaf nýs tímabils í ensku úrvalsdeildinni eftir að Marc Skinner lét af störfum.

Samkvæmt Sky Sports var ákvörðunin tekin í kjölfar viðræðna sem staðið hafa yfir í sumar um framtíðarstefnu félagsins. Skinner skrifaði undir nýjan tveggja ára samning á síðasta ári, en óánægja með fjárfestingu í kvennaliðinu er sögð hafa átt stóran þátt í að leiðir skildu.

Skinner kallaði ítrekað eftir auknum stuðningi frá félaginu og sagði í apríl að breytingar væru nauðsynlegar ef Manchester United ætlaði að keppa við bestu lið Englands.

„Við verðum að gera breytingar í sumar. Við þurfum að tryggja að við getum keppt á markaði þar sem fjárfesting skiptir miklu máli,“ sagði Skinner þá.

Framtíð kvennaliðsins hefur verið mikið til umræðu frá því INEOS og Sir Jim Ratcliffe tóku yfir rekstur félagsins árið 2023.