433

Segir þetta vera stóra vandamál United á markaðnum þessa dagana

Mynd
Getty Images

Manchester United mun halda áfram að styrkja leikmannahópinn í sumar en félagið ætlar ekki að örvænta á félagaskiptamarkaðnum. Þetta segir blaðamaðurinn Andy Mitten.

Mitten segir að United þurfi fyrst og fremst að bæta sig í að selja leikmenn áður en fleiri stór kaup verða gerð. Hann nefnir að áhugi sé á Joshua Zirkzee og Altay Bayindir, á meðan nokkrir ungir leikmenn verði lánaðir til annarra félaga. Shea Lacey verði hins vegar áfram með aðalliðinu.

„United mun ekki örvænta. Félagið reynir að forðast mistök fortíðarinnar þegar það greiddi of mikið fyrir leikmenn undir pressu,“ sagði Mitten.

Að hans mati vantar Manchester United vinstri bakvörð og annan miðjumann, en hann skilur varfærnina.

„Ég skil af hverju United er varkárt í fjármálunum. Félagið varð af tekjum vegna þess að það lék ekki í Evrópukeppni á síðustu leiktíð og hefur tapað miklum fjármunum,“ sagði Mitten.