433

Suzuki færist nær París eftir formlegt tilboð

Mynd

Paris Saint-Germain hefur sent Parma formlegt tilboð í japanska landsliðsmarkvörðinn Zion Suzuki.

Þetta segir félagaskiptafréttamaðurinn Fabrizio Romano, sem greinir frá því að tilboðið nemi samtals 33 milljónum evra. PSG er nú talið komið fram fyrir Juventus í kapphlaupinu um undirskrift markvarðarins.

Samkvæmt Romano er Parma tilbúið að halda viðræðunum áfram og PSG hefur jafnframt kynnt Suzuki framtíðarsýn sína hjá félaginu. Hún er sögð byggjast á óvissunni um framtíð Lucas Chevalier hjá franska stórliðinu.

Suzuki hefur verið einn eftirsóttasti ungi markvörður Evrópu í sumar og vakti einnig mikinn áhuga Juventus. Nú bendir þó allt til þess að PSG sé í sterkustu stöðunni og félagaskiptin gætu klárast á næstu dögum ef samkomulag næst milli félaganna.