433

Klámstjarnan uppljóstrar um þekkta menn sem hafa verið að senda henni skilaboð

Mynd

Raissa Bellini, ítölsk áhrifavaldur sem vakti mikla athygli á heimsmeistaramótinu í sumar fyrir áberandi klæðaburð sinn á leikjum, segist hafa fengið skilaboð frá leikmanni Juventus á meðan mótið stóð yfir.

Bellini, sem er stuðningskona Juventus, segir að viðbrögðin við nærveru hennar á leikjum hafi komið sér á óvart.

„Nokkrir höfðu samband við mig. Einn þeirra reyndist vera leikmaður Juventus og svo fékk ég einnig skilaboð frá þjálfara sem var á heimsmeistaramótinu,“ sagði Bellini.

Mynd

Hún segist ekki hafa átt von á þeirri athygli sem hún fékk á mótinu.

„Ég fór einfaldlega á leikina til að njóta fótboltans. Fólk tók ótrúlega vel í mig, fylgdi mér á samfélagsmiðlum og ræddi við mig um leikina. Það var eins og ég hefði eignast fullt af nýjum vinum,“ sagði hún.

Bellini, sem býr nú í Miami, sótti fjölda leikja á heimsmeistaramótinu þar sem Ítalía var ekki meðal þátttökuþjóða. Hún segist því hafa fylgst með nokkrum landsliðum á meðan keppnin stóð yfir, þó hún viðurkenni að hafa haft sín uppáhaldslið.

Bellini hefur samtals um 1,5 milljónir fylgjenda á Instagram og segir heimsmeistaramótið hafa aukið vinsældir sínar enn frekar á samfélagsmiðlum.