433

Ætla sér að gera alvöru tilboð í Fernandes - Fer hann frá United?

Mynd
Getty Images

Galatasaray ætlar sér að gera alvöru tilraun til að fá Bruno Fernandes frá Manchester United.

Samkvæmt HT Spor er tyrkneska meistaraliðið tilbúið að mæta launakröfum portúgalska miðjumannsins, sem fær um 300 þúsund pund á viku hjá Manchester United, eða um 15,6 milljónir punda á ári.

Fernandes, sem er 31 árs gamall og fyrirliði United, er samningsbundinn félaginu til sumarsins 2027. Þrátt fyrir það hyggst Galatasaray reyna að ná samkomulagi við enska félagið á næstu vikum.

Portúgalinn hefur verið lykilmaður hjá Manchester United undanfarin ár og því yrði brotthvarf hans mikið áfall fyrir félagið. Enn er óljóst hvort United sé tilbúið að selja fyrirliðann, en áhugi Galatasaray virðist vera mjög alvarlegur.