Matheus Cunha, framherji Manchester United, vakti athygli á samfélagsmiðlum eftir óvenjulegt atvik sem átti sér stað í sumarfríi hans í Brasilíu.
Bifreið Cunha bilaði á ferðalagi í sveitarfélaginu Santa Rita og þurfti hann að leita aðstoðar á verkstæði í nágrenninu. Þar kom í ljós að skipta þurfti um afturhjól á bílnum.
Þegar viðgerðinni lauk reyndi Cunha að greiða fyrir þjónustuna en eigandi verkstæðisins neitaði að taka við greiðslu.
Í myndbandi sem Cunha birti á samfélagsmiðlum útskýrði hann hvað hefði gerst.
Matheus Cunha HYPING UP a local car repair company in Brazil after they refused to take a payment for fixing his car.
Love this bloke. Sums him up entirely. 🤣❤️ pic.twitter.com/mrvlzi0slV— (fan) Frank 🧠🇾🇪 (@FrankEra_) July 30, 2026
„Þú vilt ekki að ég borgi því þú segir að ég hafi þegar veitt þér svo mikla gleði,“ sagði Cunha við bifvélavirkjann.
Framherjinn sagðist hafa boðist til að greiða með öllum mögulegum hætti en eigandinn hefði aðeins farið fram á eina greiðslu.
„Það eina sem hann bað um var að ég kynnti verkstæðið hans,“ sagði Cunha, sem varð við þeirri ósk og deildi myndbandinu með fylgjendum sínum.