Manchester United og Newcastle hafa bæði áhuga á að fá Neco Williams frá Nottingham Forest.
Samkvæmt BBC fylgjast bæði félög grannt með stöðu þessa 25 ára gamla bakvarðar, sem lék 37 af 38 leikjum Forest í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.
Williams getur leyst bæði hægri og vinstri bakvarðarstöðuna, sem gerir hann að spennandi kosti. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem United sýnir honum áhuga.
Forest vill hins vegar halda í leikmanninn og hyggst bjóða honum betri samning til að reyna að fæla önnur félög frá, þó svo að hann eigi þrjú ár eftir af núgildandi samningi.