433

Tuchel áður úthúðað manninum sem dæmir leik Englands og Noregs

Mynd
Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands. Getty Images

Clement Turpin hefur verið skipaður dómari á leik Englands og Noregs í 8-liða úrslitum HM, en það vekur athygli í ljósi sögu hans og enska landsliðsþjálfaransThomas Tuchel.

Turpin dæmdi leik Bayern Munich og Manchester City í Meistaradeildinni árið 2023, þar sem Tuchel lét óánægju sína í ljós eftir leikinn.

„Tvennt stóðst ekki gæðakröfurnar, völlurinn og dómarinn. Ég myndi gefa honum einn í einkunn af tíu. Hann var hræðilegur,“ sagði Tuchel þá.

Þýski þjálfarinn fékk sjálfur rautt spjald í leiknum fyrir mótmæli, en hefur síðan mildað tóninn gagnvart Frakkanum.

„Ég var ósáttur við frammistöðu hans og hann var ósáttur við hegðun mína. En ég tel hann vera toppdómara sem hefur sannað sig á hæsta stigi,“ sagði Tuchel á blaðamannafundi fyrir leikinn gegn Noregi.

Turpin dæmdi einnig fyrsta leik Englands á þessu heimsmeistaramóti, í 4-2 sigri á Króatíu.