433

Tíu bestu ummælin á RÚV yfir HM - Trúðar, ofnæmi, barneignir og framhjáhald í sápuóperu

Mynd

RÚV hefur staðið að umfjöllun um heimsmeistaramót karla í knattspyrnu með stakri prýði undanfarnar vikur. Allir leikir mótsins eru í beinni, gjarnan með tveimur lýsendum og svo er HM kvöld alla leikdaga, þar sem valdir sérfræðingar og þáttastjórnendur eru í hverju rúmi. DV/433 tók saman tíu bestu ummælin í HM kvöldi og birtast þau hér í engri sérstakri röð. 

Óskar um Svarthöfða og trúðana tvo

Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR og einn sá allra besti í sínu fagi hér á landi, tekur mikið pláss á listanum, eins og við var kannski að búast. Við byrjum á ummælum hans sem flugu hæst og eru jafnframt þau lengstu á listanum. Þar hjólaði Óskar í forseta FIFA, Gianni Infantino, og Donald Trump Bandaríkjaforseta í kjölfar þess að þeir áttu fund sem leiddi til þess að leikbanni lykilmanns bandaríska landsliðsins, Folarin Balogun, var hnekkt svo hann gæti tekið þátt í 16-liða úrslitum gegn Belgíu. Bandaríkjamenn áttu eftir að tapa leiknum 1-4.

„Þetta er bara vandræðalegt. Ég veit að það sem ég segi hér er ekki að fara að verða til þess að Infantino taki sig saman í andlitinu og fari að haga sér eins og maður. Hann er löngu farinn yfir það sem eðlilegt telst. Hann er löngu farinn yfir til Svarthöfða og félaga, hann er bara farinn inn í myrkrið og verður ekki hleypt inn í ljósið aftur, sama hvað ég segi. Þetta er bara grín, þetta er vandræðalegt. Og þetta er sérstaklega vandræðalegt fyrir Bandaríkjamenn. Infantino er bara trúður, og var trúður fyrir, hangandi með öllum fyrirmennunum og sleikjandi rassgatið á ríku körlunum og áhrifaríku mönnunum. Bandaríkjamenn sitja auðvitað uppi með sinn eigin trúð, appelsínugulan trúð. Þarna eru tveir trúðar saman og það er ekkert sérstaklega gáfulegt. Þetta er vandræðalegt fyrir FIFA líka en kemur ekkert sérlega á óvart. Hann er búinn að vera að gera lítið úr þessu, 48 liða HM er ekki málið, hann er bara með dollaraseðlana í augunum. Þetta er enn eitt dæmið þar sem hann er að gera lítið úr fótboltanum.“

Mynd

Enginn aðdáandi Ronaldo

Höldum áfram með Óskar, sem er vægast sagt enginn aðdáandi portúgölsku ofurstjörnunnar Cristiano Ronaldo. Telur hann að kappinn sé fyrir þó nokkru síðan kominn til ára sinna og það skemmi aðeins fyrir Portúgal að hafa hann frammi. Liðið datt úr leik gegn Spáni í 16-liða úrslitum og sárvorkenndi Óskar framherja Portúgala á bekknum, fyrir að þurfa að líða fyrir veru Ronaldo.

„Hann er búinn að tala um það að þetta verði hans síðasta HM, þetta gæti verið síðasti leikurinn hans. Sáuði það eða? Hann gaufaðist bara um völlinn og var ekki með í neinu. Hversu pirrandi er að vera Goncalo Ramos og þurfa að horfa upp á þetta? Enn eina ferðina guggnar hann (Roberto Martinez) á að taka Ronaldo út af og borgar fyrir það með því að vera dottinn út í 16-liða úrslitum.“

Mismikill húmor fyrir samsæriskenningum

Frá Ronaldo liggur beinast við að fara í Lionel Messi. Hörður Magnússon, einn ástsælasti íþróttalýsandi þjóðarinnar, gaf í skyn að FIFA væri jafnvel hlynnt því að argentíski snillingurinn færi sem lengst í keppninni. Þetta sagði hann eftir sigur Argentínu á Egyptum í 16-liða úrslitum, þar sem nokkuð var um umdeildar dómaraákvarðanir. Arnar Gunnlaugsson og Eiður Smári, sem voru með Herði í setti, vildu ekki heyra á þetta minnst.

„Þið megið ekki vera svona Messi-sinnaðir,“ sagði Hörður þá og við tóku reyndar hressilegar umræður um samsæriskenningar, umdeildar ákvarðanir og þess háttar á mótinu. 

Mynd

Ofnæmi eða ofvæni?

Edda Sif Pálsdóttir hefur, eins og ávallt, vakið lukku í þáttastjórn sinni á mótinu. Hún mismælti sig hins vegar aðeins á milli venjulegs leiktíma og framlengingar í einvígi Kólumbíu og Sviss í 16-liða úrslitum. Höddi Magg, sem lýsti leiknum, sagði eitthvað á þann veg að Edda væri spennt að taka við á meðan hlé á leiknum stæði. Hún beið í ofvæni eftir að taka við boltanum, en orðaði það reyndar ekki alveg svo.

„Ég bíð hér í algjöru ofnæmi,“ sagði Edda. Vonum allavega að þetta hafi verið mismæli.  

Uppfært: Greinarhöfundi var góðfúslega bent á að það að „bíða í ofnæmi“ sé reyndar orðagrín og þegar að er gáð hefur fólk af og til notað það í gegnum tíðina.

Andsetinn af djöflinum

Paragvæska landsliðið vakti mikla athygli en alls enga lukku gegn Frökkum í 16-liða úrslitunum. Frakkar þurftu að hafa fyrir 1-0 sigri en hegðun landsliðsmanna Paragvæ í leiknum þótti ekki mótinu sæmandi. Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands, sagði líkt og einn leikmaður þeirra væri andsetinn af djöflinum.

„Galarza er búinn að eiga mjög gott mót sem fótboltamaður. En í þessum leik var hann andsetinn af djöflinum. Hann átti að fá fimm rauð spjöld. Hann er virkilega góður leikmaður en hann varð sér til skammar.“

Mynd

Lélegasta hugmynd sögunnar?

Aftur að Óskari. Hann gaf kollega sínum með skoska landsliðið, Steve Clark, engan afslátt í gagnrýni sinni í kjölfar taps liðsins við Brasilíu í riðlakeppninni. Óskar var allt annað en hrifinn af því að Skotar skildu reyna að spila út frá marki gegn Brössum, með það í huga hvaða mannskap þeir hefðu.

„Ég veit ekki hvort ég hafi fengið svona lélega hugmynd. Ég hef fengið ótrúlega margar lélegar hugmyndir,“ sagði Óskar um málið og uppskar mikinn hlátur.

Einlægt tal um barneignir

Einhverjir gagnrýndu Jeremy Doku, landsliðsmann Belga, fyrir að skreppa heim á meðan móti stóð til að vera viðstaddur fæðinguna á frumburði sínum. Arnar Gunnlaugs og Eiður Smári Guðjohnsen vildu ekki heyra á það minnst. Arnar benti á að hann hafi verið viðstaddur fimm fæðingar og Eiður fjórar. Voru þeir sammála um að þetta væru stærstu augnablik lífsins.

„Við sem foreldrar ætlum ekkert að vera að ræða þetta. Það mikilvægasta í lífinu eru börnin okkar,“ sagði Eiður til að mynda um málið. 

Mynd

Óvænt eldræða um Nágranna

Kynnum til leiks Albert Brynjar Ingason. Honum fannst mikið halla á ástralska landsliðið í leik við Bandaríkin í riðlakeppninni. Fann hann sig knúinn til að ræða áströlsku sápuóperuna Nágranna í þessu samhengi. 

„Ég er ¼ Ástrali, hef horft á Nágranna í 20 ár. Ég man enn þegar Karl Kennedy hélt framhjá Susan með helvítis Izzy. Og þegar Toady, bad boy of  Ramsey Street, var bara lesblindur en orðinn lögfræðingur í næstu viku,“ sagði Albert meðal annars í kostuglegri ræðu sinni. 

Eiður Smári hrærður

Guillermo Ochoa, markmannsgoðsögnin í liði Mexíkó, lagði skóna á hilluna eftir að lið hans féll úr leik á dögunum. Var hann að spila á sínu sjötta heimsmeistaramóti. Fór hann í tilfinningaríkt viðtal fyrir mót og Eiður Smári gat vel tengt við hann. Hann lauk landsliðsferlinum með því að fara á EM 2016 í Frakklandi með Strákunum okkar.

„Ég var að upplifa EM 2016 á meðan ég hlustaði á hann. Ég var í nákvæmlega sama hugarástandi, ég vissi að þetta væri að enda hjá mér, var gamli maðurinn í liðinu. Mér fannst bara svo gaman að vera með, að maður verður stráklingur aftur innan hópsins,“ sagði einlægur Eiður.

Mynd

Arnar og nokkrir í frumskóginum

Endum á því þegar Arnar Gunnlaugs minntist á svokallaða Trivela-tækni er hann stóð við hlið Óskars Hrafns í setti. Þeim síðarnefnda fannst þetta full mikill rembingur.

„Þú ert eini maðurinn, þú og einhverjir þrír í frumskógum Brasilíu, sem þekkið þetta orð. Þetta er utanfótar snúningur. Varstu að koma frá Brasilíu í gær eða? Segðu þetta bara eins og þetta er,“ sagði Óskar léttur. 

Aðeins rúm vika er eftir af HM, en 8-liða úrslit eru hálfnuð. Það er því um að gera að njóta síðustu leikjanna, enda HM aðeins á fjöurra ára fresti. Það verður gaman að sjá hvort fleiri gullmolar detti inn á RÚV á komandi viku. Það er raunar alls ekki ólíklegt.