Ráðgjafi Donald Trump hefur sakað Keir Starmer um að hafa stofnað mannslífum í hættu með afskiptum sínum af leiktíma Englands gegn Mexíkó á HM.
Fyrir leik liðanna í 16-liða úrslitum kom til tals að færa leikinn fram um sex klukkustundir vegna slæmrar veðurspár. Samkvæmt breskum miðlum mótmæltu bæði enska og mexíkóska knattspyrnusambandið breytingunni og Starmer studdi afstöðu enska sambandsins. Áhyggjur voru af því að England fengi of lítinn tíma til að aðlagast hæðinni í Mexíkóborg.
Andrew Giuliani, framkvæmdastjóri starfshóps Hvíta hússins vegna HM, gagnrýndi forsætisráðherrann harðlega í viðtali við Talksport.
„Keir Starmer kom í veg fyrir að leiktímanum yrði breytt. Eftir leikinn létust þrír Mexíkóar í fagnaðarlátum. Það var verið að ræða um að færa leikinn fram til hádegis til að draga úr hættu fyrir fólk,“ sagði Giuliani.
Ummælin hafa þó verið dregin verulega í efa. Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum létust stuðningsmennirnir þrír af völdum köfnunnar eftir troðning í mannfjölda og ekkert bendir til þess að veður eða leiktími hafi átt þátt í slysinu.