433

Þjálfari Noregs segir enska liðið aðeins sigurstranglegra í kvöld

Mynd
Getty Images

Stale Solbakken, landsliðsþjálfari Noregs, segir England vera sigurstranglegra fyrir leik liðanna í 8-liða úrslitum HM í kvöld.

„Þeir eru sigurstranglegri, en ekki afgerandi sigurstranglegri,“ sagði Solbakken í samtali við BBC.

Hann telur jafnframt að pressan sé meiri á Englendingum.

„Ég held að England sé undir meiri pressu en við. En þegar leikurinn hefst hugsa leikmennirnir ekki um það.“

Þjálfarinn hrósaði einnig liði Englendinga og sagði Thomas Tuchel hafa náð að koma lykilmönnum sínum í bestu stöðurnar.

„Mér fannst þeir sérstaklega sannfærandi gegn Mexíkó. Jude Bellingham og Kane komust í frábær færi og þeir eru með mikla breidd á köntunum. Ef einn á slæman dag kemur annar inn og skilar sínu.“

Noregur hefur átt frábært heimsmeistaramót hingað til. Liðið sló Brasilíu úr leik í 16-liða úrslitunum.