433

Svona er mataræðið sem hefur haldið Messi á toppnum - Hafði mikil áhrif þegar hann tók þetta tvennt úr fyrir 12 árum

Mynd
Getty Images

Lionel Messi er enn í fremstu röð 39 ára gamall. Strangt mataræði er á meðal þess sem hefur hjálpað honum að halda sér á toppnum svo lengi.

Messi leitaði til ítalska næringarfræðingsins Giuliano Poser árið 2014 eftir að hafa glímt við endurtekin vöðvameiðsli og ógleði. Þá var gos, súkkulaði og önnur sykurrík fæða tekin út úr mataræðinu.

Poser lagði áherslu á fimm lykilþætti: vatn, ólífuolíu, heilkorn, ferska ávexti og ferskt grænmeti. Hann hvatti einnig Messi til að draga úr sykri, hvítu hveiti og mikilli kjötneyslu.

„Því lengra sem hann heldur sig frá sykri, því betra fyrir vöðvana,“ hefur Poser áður sagt.

Mynd

Samkvæmt nokkrum erlendum miðlum hefur Messi ekki drukkið gos né borðað pítsu í um tólf ár. Talið er að breytingarnar hafi átt stóran þátt í því að draga úr meiðslum og óþægindum sem höfðu áður hrjáð hann.

Auk mataræðisins heldur Messi fast í argentínskar hefðir og byrjar hvern dag á að drekka yerba mate, eins konar jurtadrykkur (sjá ofar), úr sama drykkjarkeri og hann hefur átt frá barnæsku.

„Mér finnst mate best heitt og beiskt. Ég drakk það áður með sykri en vandist beiskjunni og drekk það þannig í dag,“ sagði Messi í viðtali árið 2019.

Messi varð heimsmeistari með argentíska landsliðinu árið 2022 og hefur leitt lið sitt í 8-liða úrslit á mótinu sem nú stendur yfir. Þar mætir liðið Sviss aðfaranótt sunnudags.