Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Samir Nasri var handtekinn og yfirheyrður af frönsku lögreglunni í tengslum við rannsókn á meintu peningaþvætti sem tengist fíkniefnasmyglara sem gengur undir viðurnefninu „Wild Boar“.
Samkvæmt Le Parisien var Nasri yfirheyrður í um tíu klukkustundir á fimmtudag en síðar sleppt án ákæru.
Rannsóknin snýr að meintum tengslum við glæpanet í kringum Hakim Berrebouh, sem afplánar fangelsisdóm vegna fíkniefnabrota. Lögregla rannsakar meðal annars meint peningaþvætti í gegnum skemmtistaðinn XS í Ivry-sur-Seine, þar sem Nasri var áður hluthafi.
Nasri hefur haldið því fram við yfirvöld að hann hafi talið sig hafa selt allan eignarhlut sinn í skemmtistaðnum til Berrebouh. Hann var einnig yfirheyrður vegna sama máls í Marseille í lok júní.
Nasri, sem lék á ferlinum meðal annars með Arsenal og Manchester City, starfar nú sem sparkspekingur hjá Canal+.