433

Spánn í undanúrslit - Slæm mistök Lammens og Merino aftur hetjan

Mynd
Getty Images

Spánn og Frakkland mættust í 8-liða úrslitum HM í kvöld.

Spánverjar byrjuðu leikinn betur og Fabian Ruiz kom þeim yfir á 30. mínútu.

Belgar jöfnuðu hins vegar um tíu mínútum síðar. Þar var að verki Charles De Ketelaere, sem einnig skoraði tvö mörk í síðasta leik gegn Bandaríkjunum.

Spánverjar stýrðu leiknum í seinni hálfleik án þess þó að búa sér til dauðafæri. 

Á 88. mínútu dró hins vegar til tíðinda. Senne Lammens, sem hafði komið inn í markið eftir meiðsli Thibaut Courtouis, missti nokkuð auðvelt skot Spánverja þá klaufalega frá sér og refurinn Mikel Merino var mættur til að setja sigurmarkið annan leikinn í röð.

Lokatölur 2-1 fyrir Spán, sem mætir Frakklandi í undanúrslitum.

Belgar geta þó borið höfðuðið nokkuð hátt eftir fínasta mót.