Það virðist vera einhver óvissa um skipti Ederson til Manchester United frá Atalanta.
Hinn áreiðanlegi Fabrizio Romano sagði frá því í kvöld að United væri hætt við skiptin. Ansi óvænt, enda hafði verið greint frá því að félögin hefðu náð saman um 35 milljóna punda kaupverð.
Romano segir að United hafi látið ítalska félagið vita í kvöld að kaupin myndu ekki ganga í gegn.
The Times segir hins vegar að ekki svo ljós að United sé hætt við United. Félagið hafi þó vissulega áhyggjur af hnémeiðslum leikmannsins og að hann muni fara í frekari skoðanir áður en endanleg ákvörðun verði tekin.
United er staðráðið í að styrkja sig á miðsvæðinu í sumar. Andrey Santos er einnig á leiðinni til félagsins frá Chelsea.