433

Segja glæpasamtök hafa nýtt sér HM - „Á meðan sumir fagna mörkum eru aðrir drepnir“

Mynd

Íbúar í Guerrero-ríki í Mexíkó segja að skipulögð glæpasamtök hafi hert árásir sínar á samfélagið á meðan öryggissveitir landsins sinna öryggisgæslu vegna heimsmeistaramótsins í knattspyrnu.

Samkvæmt íbúum réðust meðlimir glæpasamtakanna La Nueva Familia Michoacana á þorpið Guajes de Ayala á miðvikudag þar sem sprengjum var varpað með drónum. Um 70 konur, börn og aldraðir leituðu skjóls í yfirgefnu húsi á meðan átökin stóðu yfir.

Íbúinn Marilu Solorio segir að yfirvöld hafi ítrekað verið vöruð við en ekkert viðhafst.

„Á meðan sumir fagna mörkum eru aðrir drepnir af drónum sem bera sprengjur. Í stað þess að verja aðeins HM-borgirnar ættu stjórnvöld að verja fólk eins og okkur,“ sagði hann.

Öryggissérfræðingurinn David Saucedo telur að aukið ofbeldi tengist því að hermenn og liðsmenn þjóðvarðliðsins hafi verið fluttir til HM-borganna, Mexíkóborg, Guadalajara og Monterrey til að sinna öryggisgæslu þar.

Mexíkósk yfirvöld hafna því hins vegar að árásirnar hafi átt sér stað með þeim hætti sem greint hefur verið frá. Í yfirlýsingu sögðu öryggisyfirvöld að lýsingum fjölmiðla hefði verið hafnað, en staðfestu um leið að öryggissveitir hefðu verið sendar á svæðið til að kanna aðstæður og efla viðveru sína.

Guerrero-ríki hefur um árabil verið vettvangur blóðugra átaka milli glæpasamtaka og vopnaðra sjálfsvörnarsveita, en íbúar segja óttann hafa aukist á ný undanfarna daga.

Það verður ekki spilað meira í Mexíkó á þessu heimsmeistaramóti, en síðasti leikurinn var á milli heimamanna og Englands í 16-liða úrslitum.