433

Nýr landsliðsþjálfari Portúgals tjáir sig um stöðu Ronaldo

Mynd
Getty Images

Jorge Jesus, nýr landsliðsþjálfari Portúgal, segir að það verði ekkert vandamál að hafa Cristiano Ronaldo áfram í liðinu.

Þessi 71 árs gamli reynslubolti skrifaði undir í gær og tekur við af Roberto Martinez. Hann starfaði áður með Ronaldo hjá Al-Nassr í Sádi-Arabíu.

Mikið var rætt og ritað um hinn 41 árs gamla Ronaldo og frammistöðu hans á HM, þar sem Portúgal datt út í 16-liða úrslitum. Margir eru á því að tími hans með landsliðinu sé löngu liðinn.

„Mín vegna verður Cristiano aldrei vandamál fyrir portúgalska landsliðið. Hann er táknmynd fótboltans hér í landi. Það er auðvelt að vinna með Ronaldo,“ segir Jesus hins vegar.

Ronaldo hefur ekki tilkynnt um hvort hann verði áfram með landsliðinu, en hann hefur allavega sagt að heimsmeistaramótið hafi verið sitt síðasta. Næsta stórmót er EM eftir tvö ár.