Arsenal og Chelsea berjast um undirskrift 18 ára gamla miðvarðarins Elijah Upson, sem er án félags eftir að hafa yfirgefið Tottenham.
Upson hafnaði atvinnumannasamningi hjá Tottenham og yfirgaf félagið á dögunum eftir ellefu ár þar.
Auk Arsenal og Chelsea hafa Bayern Munchen, Manchester City, Everton, Dortmund og Monaco einnig fylgst með honum.
Upson hefur þegar heimsótt æfingasvæði Arsenal en er sagður ætla að gefa sér góðan tíma áður en hann velur sér nýtt félag.
Athygli vekur að faðir hans, Matthew Upson, lék á sínum tíma með Arsenal.