Ekkert var til í fullyrðingum sparkspekingsins Kristjáns Óla Sigurðssonar um ósætti milli knattspyrnu- og handknattleiksdeildar FH. Voru þær leiðréttar í dag.
Í Þungavigtinni í gær sagði Kristján að handknattleiksdeildin væri brjáluð út í fótboltann fyrir að taka að sér verkefni sem snýr að því að taka upp gamalt parket á heimavelli handboltaliðanna og farga því. Hafnarfjarðarbær greiðir fyrir verkefnið og sagði Kristján knattspyrnudeildina hafa nýtt peningana til leikmannakaupa.
Meira
Segir Kaplakrika loga stafnanna á milli - „Þetta eru ótrúleg vinnubrögð og það er allt tryllt“
„Við þurfum aðeins að leiðrétta okkar besta mann Kristján Óla með parketið,“ sagði spekingurinn og samstarfmaður Kristjáns í Þungavigtinni, Mikael Nikulásson, hins vegar í þætti dagsins.
Fékk hann símhringingu frá formanni FH vegna málsins í gær.
„Viðar Halldórsson hringdi í gær og þetta var ekki alveg svona. En handboltinn vildi samt fá þetta sem fjáröflun fyrir Evrópukeppni og fengu nei. En þetta fór ekkert í einhverja leikmenn í fótboltanum. Þetta fór bara í bæði handboltann og fótboltann fyrir einhver auglýsingaskilti og allir sáttir. Rétt skal vera rétt,“ sagði Mikael enn fremur.