433

Breytingar hjá Liverpool

Mynd
Michael Edwards t.v

Breytingar eru fram undan hjá Liverpool þar sem að Michael Edwards hefur sagt starfi sínu lausu hjá eigendum félagsins, Fenway Sports Group.

Edwards, sem var íþróttastjóri Liverpool á farsælum tíma undir stjórn Jurgen Klopp til ársins 2022, sneri aftur til FSG árið 2024 sem yfirmaður knattspyrnumála.

Hlutverk hans var meðal annars að leiða vinnu við kaup FSG á öðru knattspyrnufélagi, en samkvæmt helstu miðlum hafa þau áform lítið þokast áfram.

Edwards hefur því ákveðið að láta af störfum tafarlaust, þrátt fyrir að eiga eitt ár eftir af samningi sínum.